Mánudagurinn byrjaði á stærðfræði þar sem nemendur unnu aðmarkmiðum vikunnar. Í þriðja og fjórða tíma var íslenska. Þar unnu nemendur aðmarkmiðum sínum. Í ensku voru bls. 59 -64 lesnar og glósðar, einnig voru verkefni í vinnubók unnin. Í náttúrufræði varhorft á mynd um dýr með kalt blóð.
Á þriðjudag var samfélagsfræði í fyrstu tveimur tímunum, 9.bekkur er að vinna í efnahagskerfinu. 8. bekkur hefur verið að vinna meðmenningu á Íslandi. Í íslensku eru allir að vinna í Skerpu á sínum hraða ogvinna að markmiðum sínum. Í dönsku var unnið í vinnubók með start bókinni.Nemendur voru að vinna blaðsíður 64 -67. Í ensku var unnið að áætlunum vikunnarsem voru gefin á mánudegi, þeir sem voru fljótir að klára lásu í enskri frjálslestrarbók.Dagurinn endaði ííþróttum, þar sem farið var í handbolta.
Á miðvikudag var stærðfræði og upplýsingamennt fyrstu tvotímana og síðan aftur í síðasta tíma fyrir mat og fyrsta tíma eftir mat. Varbekknum skipt upp í tvo hópa þar sem annar hópurinn vann í upplýsingamennt hjáArnari og hinn hópurinn vann í stærðfræði hjá afleysingakennara þar sem Ása satyfir samræmdu prófi. Í upplýsingamennt var skipulagsbókin ljósrituðog afhent. Dagurinn endaði í náttúrufræði þar sem nemendur gerðu sjálfspróf2.3.
Á fimmtudag var danska í fyrsta tíma þar sem unnið var íbls. 67-74. Síðan var tjáning þar sem nemendur fluttu ljóð. Í þriðja og fjórða tíma var samfélagsfræði þarsem haldið var áfram vinnu við sömu viðfangsefni og á þriðjudeginum. Í síðasta tíma fyrir mat var bekkjarfundur,sem var mjög stuttur að þessu sinni vegna samræmda prófa og fórum við út í góðaveðrið. Eftirhádegið var íslenska þar sem nemendur unnu að markmiðum sínum og þau enduðu daginn í íþróttum þar sem fariðvar í handbolta.
Á föstudag var íslenska þar sem unnið var að markmiðum íSkerpu. Í stærðfræði var unnið að markmiðum. Flestir eru vel staðsettirsamkvæmt áætlun en þó eru nokkrir sem þurfa að taka sig á til að lenda ekki ítímaþröng. Í dönsku var unnið í vinnubók sem var kláruð. Í síðasta tíma var stærðfræði þar sem nemendurunnu að markmiðum sínum.
Takk fyrir góða viku og eigið góða helgi.
Kveðja Ása