Vikan 14. – 18. janúar
Mánudagurinn var með eðlilegu sniðu. Í fyrsta tíma varstærðfræði þar sem nemendur hafa verið að vinna að markmiðum sínum í kafla 3 (8. bekkur ) og kafla 4 ( 9. bekkur ). Í ensku var verið að vinna í Actionlesbók og vinnubók. Núna erum við að vinna með frægt fólk og þar er meðal annarstalað um Björk Guðmundsdóttur. Í íslensku fór 8. bekkur með Ásu inn á bókasafnþar sem verkefnið sem þau áttu að skila var skoðað. Eftir yfirferð var unnið ílotu 5 í Skerpu. 9. bekkur var með Möllu í stofunni að vinna í lotu 5 og var aðflytja söguna sem átti að vera búið að gera heima. Í náttúrufræði var byrjað áþví að lesa fyrir prófið og þegar klukkutími var eftir var prófið tekið.
Á þriðjudeginum varpróf í samfélagsfræði úr bls. 14-36. Í dönsku var unnið í vinnubók að markmiðumvikunnar sem eru að klára niður bls. 39. Í íslensku unnu nemendur áfram í lotu5 í Skerpu. Í stærðfræði unnu nemendur að markmiðum vikunnar. Í íþróttum varfarið í dodgeball.
Á miðvikudag var stærðfræði og þar sem nemendur voru aðvinna að markmiðum sínum í stærðfræði. Klukkan 11:00 mættum við út á skólavöllog tókum þátt í snjóskúlptúrakeppni. Eftir hádegi var náttúrufræði þar sem viðbyrjuðum að fara í kafla 5 í Maður og náttúra.
Á fimmtudag var danska í fyrsta tíma þar sem nemendur unnuað markmiðum vikunnar. Í kennslustund tvö var tjáning, þar sm nemendur voru aðvinna í verkefnum sem á að skila á næsta fimmtudag. Í þriðja og fjórða tíma var samfélagsfræði þarsem farið var yfir bls. 36-41. Á bekkjarfundi vorum við að spjalla um daginn ogveginn. Í íslensku héldu nemendur áfram að vinna í lotu 5. Í íþróttum var fariðí Dodgeball og Starwars.
Á föstudag var byrjað í íslensku og þar eru nemendur aðvinna vel að markmiðum í lotu 5. Í ensku var unnið með ákveðinn og óákveðinngreinir. Í dönsku var unnið í hlustunaræfingum. Í ensku var verið að vinna að markmiðumvikunnar.
Takk fyrir góða viku og hafið það gott um helgina.
Kveðja Ása