Í bæklingnum er að finna hagnýtar og aðgengilegar upplýsingar um hvernig einstaklingar og fjölskyldur geta undirbúið sig fyrir óvæntar aðstæður sem geta raskað daglegu lífi, svo sem náttúruhamfarir, óveður, rafmagnsleysi og truflanir á fjarskiptum.
Öryggi er sameiginlegt verkefni og með einföldum undirbúningi geta heimili aukið eigið öryggi, stutt við nágranna og auðveldað sveitarfélögum og viðbragðsaðilum að sinna hlutverki sínu þegar á reynir.
Markmiðið er að fleiri hugi að sínum viðbúnaði áður en eitthvað kemur upp á.
Íbúar Strandabyggðar eru hvattir til að kynna sér efni bæklingsins og einnig heimasíðuna verumvidbuin.is
