Fara í efni

Verðfyrirspurn vegna skólaaksturs

04.08.2023
Strandabyggð gerir hér með verðfyrirspurn varðandi skólaakstur fyrir skólaárið 2023-2024. Um er að ræða akstur með skólabörn leik- og grunnskóla í dreifbýli í Strandabyggð.  Ti...
Deildu

Strandabyggð gerir hér með verðfyrirspurn varðandi skólaakstur fyrir skólaárið 2023-2024.

Um er að ræða akstur með skólabörn leik- og grunnskóla í dreifbýli í Strandabyggð.  Tilboðsgjafi skal veita upplýsingar um bílakost, mönnun, bakgrunn, reynslu og þekkingu á staðháttum.  Tilboðsgjafi skal hafa hreina sakaskrá.


Allar nánari upplýsingar veitir sveitarstjóri, Þorgeir Pálsson í síma 899-0020.  Einnig má senda fyrirspurn á netfangið thorgeir@strandabyggd.is   

Frestur til að skila inn tilboðum er til loka dags 13. ágúst n.k.  Strandabyggð áskilur sér rétt til að taka þeim tilboðum sem metin eru hagstæðust eða hafna öllum.

Til baka í yfirlit