Fara í efni

Varðstjóri Slökkviliðs Strandabyggðar

26.11.2019
Varðstjóri Slökkviliðs Strandabyggðar Brunavarnir Dala, Reykhóla og Stranda bs. (BDRS) auglýsa stöðu varðstjóra Slökkviliðs Strandabyggðar lausa til umsóknar.Um er að ræða stöð...
Deildu

Varðstjóri Slökkviliðs Strandabyggðar

 

Brunavarnir Dala, Reykhóla og Stranda bs. (BDRS) auglýsa stöðu varðstjóra Slökkviliðs Strandabyggðar lausa til umsóknar.

Um er að ræða stöðu í hlutastarfi.  Launakjör samkvæmt kjarasamningum Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna.

Nauðsynlegt er að viðkomandi hafi reynslu af starfi í slökkviliði.  Viðkomandi þarf að geta hafið störf frá næstkomandi áramótum.

Búsetuskilyrði: Viðkomandi þarf að búa innan við 10 mínútna fjarlægð frá slökkvistöð.

 

Umsóknarfrestur er til hádegis 9. desember 2019. Umsóknum ásamt upplýsingum um reynslu og menntun skal skilað rafrænt á póstfangið slokkvilid@dalir.is merkt "Varðstjóri Strandabyggð".

 

Allir áhugasamir hvattir til að sækja um.

Nánari upplýsingar veitir Ívar Örn Þórðarson, Slökkviliðsstjóri, sími 430 4700 eða 451 3510

 

Til baka í yfirlit