Jón Bjarnason sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hefur undirritað reglugerðir um úthlutun byggðakvóta fyrir fiskveiðiárið 2010/2011. Hólmavík er úthlutað 100 þorskígildistonnum sem er jafn mikið og árið 2010. Heildarúthlutunin nemur 4564 tonnum sem er um 17% aukning frá fyrra fiskveiðiári þegar heildin var 3885 tonn, auk 972 tonnum sem ekki nýttust í fyrri úthlutun. Alþingi samþykkti á árinu lagabreytingu sem heimilar tilflutning byggðakvóta milli fiskveiðiára með sama hætti og gert er með aðrar úthlutanir aflamarks. Byggðakvóti Hólmavíkur var fullnýttur árið 2010 og flyst því ekkert á milli áranna 2010 og 2011. Alls fá nú 44 byggðarlög í landinu úthlutun samkvæmt frétt á vef Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins, sjá hér. Þar kemur einnig fram að byggðakvóti getur samkvæmt reglugerð nr. 857/2010 mestur orðið 300 tonn og fær eitt byggðarlag, Flateyri, svo háa úthlutun. Önnur sveitarfélög eru umtalsvert lægri.
Hægt að sjá forsendur byggðakvóta hér.
Úthlutun byggðakvóta 2011
04.01.2011
Jón Bjarnason sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hefur undirritað reglugerðir um úthlutun byggðakvóta fyrir fiskveiðiárið 2010/2011. Hólmavík er úthlutað 100 þorskígildisto...