Strandabyggð auglýsir eftir verktaka til að setja niður hreinsigám í Austurtúni á Hólmavík. Allar nánari upplýsingar og útboðsgögn veitir Jóhann Birkir Helgason hjá VERKÍS á Ísafirði og þeir sem óska útboðsgagna eða upplýsinga senda tölvupóst á netfangið jbh@verkis.is
Frestur til að skila inn tilboðum er til 11. mars 2026 kl. 11:00 og ber að skila tilboðum til Jóhanns Birkis Helgasonar, VERKÍS. Strandabyggð áskilur sér rétt til að hafna öllum tilboðum eða taka því sem telst hagkvæmast fyrir sveitarfélagið.
