Úrslit sveitarstjórnarkosninga liggja fyrir í Strandabyggð. Á kjörskrá voru 351 og greidd atkvæði 301. 15 seðlar voru auðir og 2 voru ógildir. Kjörsókn var góð eða 85,8%. Niðurstaðan er eftirfarandi:
G-listi Vegvísis hlaut 141 atkvæði eða 49,6% og þrjá kjörna fulltrúa
B-listi Framsóknar og óháðra hlaut 74 atkvæði eða 26,1% og 1 kjörinn fulltrúa
T-listi Strandabandalagsins hlaut 69 atkvæði og 24,3% og einn kjörinn fulltrúa.
