Í vikunni verður byrjað að fara með tunnur í dreifbýli. Við erum að aðlagast þessum breytingum smátt og smátt en þetta er reynslutími fyrir okkur öll og mögulega rekum við okkur stundum á eitthvað sem gengur ekki upp. Íbúar mega endilega hafa samband við skrifstofuna s. 451-3510 eða senda okkur póst með spurningum.
- Ekki verða settar tunnur á lögbýli/hús í dreifbýli án fastrar búsetu en eigendur greiða sorphirðu- og úrvinnslugjald sumarhúsa sem fastagjald. Ef eigendur þeirra fasteigna óska eftir tunnum verður brugðist við því. Vinsamlegast sendið þá beiðni í tölvupósti á strandabyggd@strandabyggd.is
- Íbúar í dreifbýli geta óskað eftir niðurfellingu tunnugjalda og skilað sínum úrgangsflokkum á móttökustöð á opnunartíma. Íbúar greiða þó fastagjaldið kr. 35.000 f. lögbýli og 25.000 fyrir sumarhús eða hús án fastrar búsetu
- Íbúar í dreifbýli geta óskað eftir fötum fyrir lífúrgang sér að kostnaðarlausu en þurfa að skila á móttökustöð á opnunartíma og greiða kílóagjald fyrir losun
- Dýraleyfar sem falla til hjá bændum þarf að tilkynna til Sorpsamlags Strandasýslu s. 893-3351 og óska eftir förgun. Að öllu jöfnu eru dýraleyfar sóttar á auglýstum dögum á heimasíðu Strandabyggðar haust og vor
