Kæru íbúar Strandabyggðar,
Það hefur vart farið framhjá ykkur, en nú er kvikmyndatökulið að verða áberandi hér á Hólmavík, enda stendur mikið til. Kvikmyndin Siglufjörður (vinnuheiti sem verður Hólmavík) eftir Baskneska leikstjórann Mikel Aguirresarobe verður tekin á Hólmavík í mars og apríl næstkomandi. Mikill meirihluti myndarinnar verður tekinn upp hér. Þetta er stórt verkefni með fjölda manns í vinnu. Aðalleikarar myndarinnar eru Sergio Peris - Menchete, Ingrid Garcia Jonsson og Eric Cantona. Aðrir leikarar sem koma að tökum á í Hólmavík eru íslenskir.
Grunnur myndarinnar byggir á Baskalögunum svonefndu og afnámi þeirra árið 2015 – einnig sjáum við síðustu Baskana myrta af mönnum Ara í Ögri fjórum öldum fyrr. Baskneski lögræðingurinn Koldo er sendur með fulla tösku af seðlum til Íslands að kaupa fiskvinnslu rétt áður en lögin eru afnumin. Íslendingarnir komast á snoðir um peningana og ætla að láta Koldo hverfa og peningana um leið. Koldo á fótum fjör að launa meðfram því að sinna vinnu sinni og kaupa fiskvinnsluna og komast undan lögreglunni sem finnst Baskinn grunsamlegur í meira lagi.
Við fögnum þessum hópi Spánverja og Íslendinga og bjóðum þau velkomin til Hólmavíkur. Þetta er mjög skemmtilegt verkefni sem mun lífga upp á hversdaginn hjá okkur. Einhverjar breytingar verða á aðgengi að stofnunum sveitarfélagsins, eins og t.d. Hnyðju, en þar er aðalbækistöð þessa hóps. Við leysum öll slík verkefni.
Hólmavík og nágrenni í allri sinni dýrð spila stórt hlutverk í myndinni og eru kvikmyndagerðarmennirnir búnir að óska eftir snjókomu fram í miðjan apríl. Biðla þeir til galdramanna og kvenna á Hólmavík að stuðla að því með öllum tiltækum ráðum!
