Ungmennin koma frá Svíþjóð og halda til á Hólmavík til 1 júlí. Á meðan á dvöl þeirra stendur heimsækja þau fyrirtæki í Strandabyggð og Kaldrananeshreppi og fara í skoðunarferðir með starfsmönnum félagsmiðstöðvarinnar Ozon.
Nemendur á unglingastigi í Strandabyggð og Kaldrananeshreppi eru þátttakendur í þessu verkefni og fylgja ungmennunum frá Svíþjóð á meðan á heimsókninni stendur og munu þau ferðast til Svíþjóðar í júlí og heimsækja þeirra heimabæ.
Verkefnið er styrkt af Erasmus+ hjá Rannís.
Þetta er spennandi verkefni og tökum við vel á móti þessum flotta hópi.
