Fulltrúar aðildarsveitarfélaga undirrituðu Svæðisskipulag Vestfjarða 2025-2050 ásamt HMS við formlega athöfn við minnismerki Kollabúðafunda í Þorskafirði.
Með svæðisskipulaginu hafa sveitarfélögin náð saman um framtíðarsýn og sett markmið til að framþróun samfélaga, atvinnulífs og umhverfis á Vestjörðum. Framkvæmd skipulagsins verður í höndum sveitarfélaganna í gegnum aðalskipulagsgerð og Sóknaráætlun Vestfjarða auk fleiri áætlana. En skipulagið veitir einnig áætlunum stjórnvalda leiðsögn hver sé stefna sveitarfélaganna á Vestfjörðum.
Vinna að gerð svæðisskipulagsins hófst í haustið 2023 og lauk með samþykkt sveitarstjórna og HMS í maí og júní s.l.. Stjórnun á gerð skipulagsins var á vegum Svæðisskipulagsnefndar Vestfjarða með aðild starfsmanna Vestfjarðastofu. Skipulagsráðgjöf var í höndum VSÓ ráðgjafar og Urbana ehf.
