Strandabyggð auglýsir lausa til umsóknar stöðu sveitarstjóra.
Starf sveitarstjóra í Strandabyggð er laust til umsóknar og er leitað eftir kraftmiklum og áhugasömum einstaklingi til að takast á við krefjandi verkefni.
Í Strandabyggð búa um 500 íbúar og er Hólmavík þéttbýlisstaðurinn. Atvinnulíf í sveitarfélaginu er fjölbreytt og skólastarf öflugt, grunnskóli, leikskóli og tónskóli. Nánari upplýsingar um Strandabyggð er að finna á vefsíðunni www.strandabyggd.is.
Í nýliðnum sveitarstjórnarkosningum voru tveir listar í kjöri í Strandabyggð, J-listi félagshyggjufólks og V-listi Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs. Listarnir hafa gert með sér samkomulag um samstarf á kjörtímabilinu.
Starfsvið sveitarstjóra:
- Daglegur rekstur sveitarfélagsins og ábyrgð á framkvæmd ákvarðana sveitarstjórnar
- Yfirumsjón með skipulagi og virkni stjórnsýslu sveitarfélagsins og starfsmannamálum
- Náið samstarf við sveitarstjórn, undirbúningur og upplýsingagjöf á fundum sveitarstjórnar
- Annast upplýsingamiðlun og samskipti við samstarfsaðila, stofnanir, samtök, fyrirtæki og íbúa
- Að gæta hagsmuna Strandabyggðar út á við, vera talsmaður sveitarstjórnar og vinna að framfaramálum
- Stefnumarkandi vinna og mótun framtíðarsýnar í ólíkum málaflokkum
Helstu kostir sveitarstjóra:
- Hæfni í mannlegum samskiptum
- Leiðtogahæfni, frumkvæði og hugmyndaauðgi
- Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti
- Áhugi á uppbyggingu samfélagsins, kynningarmálum, ímynd og stefnumótun
- Áhugi og reynsla af bókhaldi, stjórnun og rekstri
- Þekking á sveitarstjórnarmálum er æskileg en ekki skilyrði
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi er kostur en ekki skilyrði
Nánari upplýsingar:
Þórir Þorvarðarson,thorir@hagvangur.is
Rannveig Jóna Haraldsdóttir,rannveig@hagvangur.is.
Umsóknarfrestur:
Til og með 4. júlí 2010