Fundur var haldinn í Umhverfis-og skipulagsnefnd Strandabyggðar fimmtudaginn
16. maí 2013, kl. 17:00 á skrifstofu sveitarfélagsins.
Fundinn sátu: Jón Gísli Jónsson formaður, Valgeir ÖrnKristjánsson, Hafdís Sturlaugsdóttir, Elfa Björk Bragadóttir, DagrúnMagnúsdóttir, Einar Indriðason slökkviliðsstjóri og Gísli Gunnlaugsson byggingarfulltrúisem ritaði fundargerð.
Á dagskrá fundarins vareftirfarandi:
1. Gröf Bitrufirði.
Erindifrá Rögnvaldi Gíslasyni þar sem hann sækir um leyfi til að rífa tvær geymslur ájörð sinni Gröf. Geymslurnar vorubyggðar sem fjós og hlaða og eru að hruni komnar.
Einnigsækir Rögnvaldur um að skráð verði breytt notkun á eldra íbúðarhúss í geymslu.
Erindið samþykkt.
2. HandverksfélagiðStrandakúnst, færanlegt hús.
Erindifrá Ingibjörgu Benediktsdóttir fyrir hönd Handverksfélagsins Strandakúnst þarsem óskað er eftir heimild til að staðsetja færanlegt söluhús við Höfðatún, átúninu við skilti N1, á tímabilinu frá 1. júní til 1. september. Húsið verður án vatnslagna en tengja þarf þaðvið rafmagn. Einnig óskarHandverksfélagið eftir að öll gjöld sem falla til við leyfisveitingu verðiveitt sem styrkur.
Jón Gísli Jónsson og Valgeir ÖrnKristjánsson víkja af fundi við afgreiðslu þessa dagskrárliðar.
Handverksfélgið Strandakúnst hefur óskaðeftir annarri staðsetningu en fram kemur í umsókninni þ.e.á opnu svæði vestan við Fiskislóð 1. Nefndin samþykki þá staðsetningu enda verðiskilað inn teikningum af húsinu.
Beiðni um niðurfellingu gjalda er vísaðtil sveitarstjórnar.
3. Fjárhús, Húsavík.
MatthíasLýðsson og Hafdís Sturlaugsdóttir óska eftir leyfi til að klæða gafl fjárhúsasem byggð voru 1957, með kantaðri stálklæðningu líkt og önnur hús hafa veriðklædd með. Gluggar og hurðir sem eru ágaflinum verða endurnýjaðar með sama útliti og nú er.
Hafdís Sturlaugsdóttir víkur af fundivið afgreiðslu þessa dagskrárliðar.
Erindið samþykkt.
4. Borgabraut4, trjágróður.
Erindifrá Sævari Benediktssyni f.h. Finna Hótels þar sem hann sækir um leyfi til aðfella nokkur tré fyrir neðan Finna Hótel við Borgabraut 4.
Samþykkt að leyfa grisjun trjánna.
5. Borgabraut4, stækkun.
Erindifrá Sævari Benediktssyni f.h. Finna Hótels þar sem hann sækir um leyfi til aðfjölga gistirýmum með því að lengja húsið um 8 metra í suðvestur ogsuðaustur. Stækkun hússins yrði þrjárhæðir.
Afgreiðslu frestað og byggingarfulltrúafalið að afla nánari upplýsinga um umfang stækkunarinnar.
6. Húnaþingvestra, aðalskipulag.
Lagtfram bréf Skúla Þórðarsonar sveitarstjóra Húnaþings vestra þar sem leitað erumsagnar á skipulags- og matslýsingu fyrir nýtt aðalskipulag Húnaþings vestra2014-2026.
Umhverfis- og skipulagsnefnd gerir ekkiathugasemdir við skipulags- og matslýsingu fyrir nýtt aðalskipulag Húnaþingsvestra 2014-2026.
7. Sjókvíaeldií Ísafjarðardjúpi.
Lagtfram afrit af bréfi Páls Arnars Pálssonar, Pacta lögmönnum, tilúrskurðarnefndar umhverfis- og auðlyndamála varðandi fyrirhugaða 7.000 tonnaframleiðslu á eldisfiski í sjókvíum í Ísafjarðardjúpi.
Lagt fram til kynningar.
8. Önnur mál
a) Hólmadrangur.
Erindi frá Hólmadrangiehf. þar sem óskað er eftir leyfi til framkvæmda við vélasalfyrirtækisins. Fyrirhugaðar framkvæmdirfela í sér stækkun vélasalar og lagfæringar á þaki.
Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkir erindi Hólmadrangsmeð fyrirvara um að eldvarnir og flóttaleiðir verði unnar í samráði viðslökkviliðsstjóra.
b) Skógræktaráform á Felli,Kollafirði.
Fyrirspurn frá TjallingBos um hvort heimilt sé að hefja fram-kvæmdir við skógrækt á Felli eða hvortsækja þurfi um framkvæmdaleyfi.
Umhverfis- og skipulagsnefnd telur að framkvæmdin sé þesseðlis að ekki þurfi að sækja um framkvæmdaleyfi. Hins vegar vill nefndin bendaá nauðsyn þess að við skipulag skógarins verði aðkoma slökkviliðs að honum tryggð.
c) Beiðni um umsögn.
Bréf frá sýslumanni þarsem óskað er umsagnar á erindi Bjarnveigar ehf. vegna umsóknar um starfsleyfi fyrirgististað í flokki II í sumarhúsinu Brekkuseli.
Umhverfis- og skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd viðútgáfu rekstrarleyfis.
d) Borgabraut 35.
Borist hefur munnlegfyrirspurn frá eiganda hússins að Borgabraut 35 sem óskar eftir að skráninguhússins verði breytt úr sumarhúsi í íbúðarhús.
Þar sem húsið uppfyllir ekki þær kröfur sem gerðar erutil íbúðarhúsa er ekki hægt að verða við ósk húseiganda um breytta skráningu.
e) Útihús við Víðidalsá
Lögð fram breytt tillagaað lóð fyrir útihúsin við Víðidalsá.
Framlögð tillaga samþykkt.
Jón Gísli Jónsson
Valgeir ÖrnKristjánsson
Elfa Björk Bragadóttir
Hafdís Sturlaugsdóttir
Dagrún Magnúsdóttir
Einar Indriðason
Gísli Gunnlaugsson