Fara í efni

Umhverfis- og skipulagsnefnd 15. apríl 2013

01.07.2013
Fundur var haldinn í Umhverfis-og skipulagsnefnd Strandabyggðar mánudaginn15. apríl 2013, kl. 17:00 á skrifstofu sveitarfélagsins. Fundinn sátu: Jón Gísli Jónsson formaður, Valgeir Ö...
Deildu

Fundur var haldinn í Umhverfis-og skipulagsnefnd Strandabyggðar mánudaginn

15. apríl 2013, kl. 17:00 á skrifstofu sveitarfélagsins.

Fundinn sátu: Jón Gísli Jónsson formaður, Valgeir ÖrnKristjánsson, Lýður Jónsson, Elfa Björk Bragadóttir og Gísli Gunnlaugssonbyggingarfulltrúi sem var í símasambandi og ritaði fundargerð.

Á dagskrá fundarins vareftirfarandi:

Grenndarkynning fyrir einbýlishús við Lækjartún 9.

Fariðyfir gögn vegna grenndarkynningar fyrir einbýlishús við Læjartún 9,athugasemdafrestur er liðinn.

Þar sem skriflegt samþykki barst frá öllum húseigendum semfengu send kynningargögn, án athugasemda, leggur umhverfis- og skipulagsnefndtil við sveitarstjórn að deiliskipulag vegna lóðarinnar við Læjartún 9 verðisamþykkt.

Grenndarkynning fyrir parhús við Miðtún 9.

Fariðyfir gögn vegna grenndarkynningar fyrir parhús við Miðtún 9,

athugasemdafresturer liðinn.

Skrifleg svör bárust frá öllum sem fengu send gögn nemaeigendur tveggja húsa, þ.e. við Miðtún 7 og Miðtún 11.

Í svörum tveggja aðila koma fram ábendingar ogathugassemdir:

a) Ágúst Guðjónsson Miðtún 5

„Varðandi útlit á þaki á parhúsinu þá tel ég réttara aðmiða við þakgerð þeirra húsa sem fyrst voru byggð við þessa götu , þ.e.a.s.Miðtún 3, 5 og 7.

Að öðru leiti er ég samþykkur fyrirhugaðri byggingu.“

a) Guðmundur H.Þórðarson Lækjartúni 16

„Hef áhyggjur af breytingum á sjóalögum og aðþrenginguútsýnis.“

Svör við ábendingum og athugasemdum:

a) Þar sem grunnflöturhússins er nokkuð stærri en húsanna við Miðtún 3, 5 og 7 er taliða aðparhúsunum fari betur að vera með svipaðan þakhalla og húsin við Miðtún 11 og13 og þannig verði þau ekki eins yfirgnæfandi í umhverfinu.

b) Erfitt getur verið aðátta sig á hvernig snjósöfnun kemur til með að breytast og ólíklegt að hún aukist eitthvað við húsin aðLækjartúni 12, 14 og 16.

Ljóst er að útsýni úr Lækjartúni mun þrengjast en þóekki mikið umfram það sem hefði orðið með einbýlishúsi að Miðtúni 9 eins og þaðer sett fram á fyrra skipulagi.

Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til viðsveitarstjórn að deiliskipulag vegna lóðarinnar við Miðtún 9 verði samþykkt.

Grenndarkynning fyrir parhús við Höfðatún 1 - 3.

Fariðyfir gögn vegna grenndarkynningar fyrir parhús við Höfðatún 1 - 3,athugasemdafrestur er liðinn.

Skrifleg svör bárust frá öllum sem fengu send gögn nemaeigendur fjögurra húsa, þ.e. við Austurtún 8 og 10, Víkurtún 9 og Miðtún 1.

Í svörum tveggja aðila koma fram ábendingar ogathugassemdir:

a) SigurlaugStefánsdóttir Víkurtúni 3.

„Undirrituð hefur áhyggjur af bílastæðum við Víkurtún1-11 og vill að það verði tryggður nægjanlegur fjöldi bílastæða fyriríbúana.

Jafnframt hef ég miklar áhyggjur af snjóalögum.

Ég er ekki beint hrifin af þessu en sé það viljimeirihluta íbúanna að þetta sé samþykkt þá vil ég ekki standa í vegi fyrirþví.“

b) Hannibal Helgason ogSjöfn Helgadóttir Austurtúni 12.

„Undirritaðir íbúar í Austurtúni 12 samþykkja bygginguað Höfðatúni 1 – 3 ef húsin eru 1. hæðar, annars ekki.“

Svör við ábendingum og athugasemdum:

a) Ekki ætti að verðamikil breyting á bílastæðum núverandi húsa þar sem lóðin er nú nýtt undirleikvöll og gert er ráð fyrir bílastæðum innan lóða parhúsanna.

Erfitt er að gera sér nákvæma grein fyrir breyttri snjósöfnunvið tilkomu parhúsanna en líklegt er að hún aukist eitthvað á Höfðatúni oge.t.v. líka á aðkeyrslunni að Víkurtúni 1 til 11.

b) Í skipulagstillögunnier gert ráð fyrir að parhúsin verði á einni hæð.

Grenndarkynning fyrir einbýlishús við Brunngötu 7.

Fariðyfir gögn vegna grenndarkynningar fyrir einbýlishús við Brunngötu 7,athugasemdafrestur er liðinn.

Afgreiðslu frestað til næsta fundar.

Höfðagata 5.

Boristhefur erindi frá Guðmundi Björnssyni þar sem hann sækir um leyfi til að rífaíbúðarhús sitt að Höfðagötu 5. Húsið sembyggt er árið 1925 skemmdist mikið í bruna fyrr á árinu og er ekki talið borgasig að gera við það. Umsækjandi villrífa og fjarlægja húsið og sökkulinn, fylla í grunninn með malarpúða og byggjaá honum einnar hæðar timburhús á steyptum sökkli ca 120 m2 að stærð. Miðað er við að nýtt hús sé með risþaki oghafi því sama útlitsform og bílgeymsla sem einnig stendur á lóðinni.

Umhverfis- og skipulagsnefnd samþykkirleyfi til niðurrifs hússins.

Áður en hægt er að samþykkja byggingu ánýju húsi á lóðinni þurfa að berast nánari upplýsingar m.a. um stærð þess oglögun vegna grenndarkynningar sem fram þarf að fara verði nýtt hús byggt íannarri mynd en núverandi hús.

Erindi frá Skipulagsstofnun.

Erindifrá Skipulagsstofnun er varðar skipulagsskilmála varðandi grunnskóla ídeiliskipulagi.

Lagt fram til kynningar.

Minjastofnun Íslands.

Erindifrá Minjastofnun Íslands þar sem kynnt er að stofnunin hafi tekið tilstarfa 1. janúar s.l. og tekið yfir öllverkefni Fornleifaverndar og Húsafriðunarnefndar.

Lagt fram til kynningar.

Önnur mál

a) Snjómokstur.

Umhverfis-og skipulagsnefnd beinir því til sveitarstjórnar að taka upp viðræður viðVegagerðina um fyrirkomulag snjómoksturs í sveitarfélaginu.

Jón Gísli Jónsson

Valgeir ÖrnKristjánsson

Elfa Björk Bragadóttir

Lýður Jónsson

Gísli Gunnlaugsson

Til baka í yfirlit