Fara í efni

Tvö störf laus til umsóknar

12.03.2018
Auglýst er eftir starfsmönnum í tvö störf í félagsþjónustu í Strandabyggð, annarsvegar starfsmaður í búsetu og hinsvegar starfsmaður í félagslegri heimaþjónustu. Sjá nánar um störfin hér að neðan.
Deildu
Störf í búsetu
Starfsmaður óskast í búsetu hjá fatlaðri manneskju. Um er að ræða 100% starf við mikla umönnun. Einnig er auglýst eftir sumarstarfsfólki á sama stað. Unnið er á sólarhringsvöktum. Reynsla af umönnun æskileg. Laun samkvæmt kjarasamningi VerkVest.

Starf í félagslegri heimaþjónustu
Starfsmaður óskast í félagslega heimaþjónustu frá 1. maí. Um er að ræða hlutastarf. Laun samkvæmt kjarasamningi VerkVest.
Umsóknarfrestur er til 10. apríl 2018. Umsóknir sendist til Maríu Játvarðardóttur, félagsmálastjóra, Höfðagötu 3, 510 Hólmavík.
Nánari upplýsingar fást hjá Maríu, í síma 842-2511.
Til baka í yfirlit