Fara í efni

Tónaflóð í Bragganum í kvöld

13.03.2013
Í kvöld, miðvikudagskvöldið 13. mars kl. 19:00, fara fram í Bragganum á Hólmavík fjáröflunartónleikar nemendafélags Grunnskólans á Hólmavík og félagsmiðstöðvarinnar Ozon. Tóns...
Deildu
Í kvöld, miðvikudagskvöldið 13. mars kl. 19:00, fara fram í Bragganum á Hólmavík fjáröflunartónleikar nemendafélags Grunnskólans á Hólmavík og félagsmiðstöðvarinnar Ozon. Tónskólinn á Hólmavík hefur veg og vanda af tónlistarflutningnum á tónleikunum, en alls munu fimm hljómsveitir skipaðar nemendum úr 5.-10. bekk stíga á stokk og spila vel þekkta slagara ásamt hinum og þessum söngvurum sem jafnan setja mikinn svip á viðburðinn.

Allir eru hjartanlega velkomnir - aðgangseyrir er kr. 1000 fyrir fullorðna, 500 fyrir grunnskólanema og frítt fyrir yngri.
Til baka í yfirlit