Fara í efni

Tómstunda-, íþrótta- og menningarnefnd óskar eftir tilnefningum til Íþróttamanns Strandabyggðar 2025.

01.01.2026
Tilnefningar sendist á netfangið strandabyggd@strandabyggd.is til og með 15. janúar 2026.
Deildu

Tómstunda-, íþrótta- og menningarnefnd óskar eftir tilnefningum til Íþróttamanns Strandabyggðar 2025.

Útnefningunni er ætlað að vera viðurkenning fyrir unnin íþróttaafrek eða annað framlag til íþróttastarfs á liðnu ári og hvatning til enn frekari afreka í framtíðinni.

Íþróttamaður ársins í Strandabyggð þarf að hafa náð 16 ára aldri og vera með lögheimili í Strandabyggð á árinu.

Á sama hátt og Tómstunda-, íþrótta- og menningarnefnd útnefnir íþróttamann ársins í Strandabyggð skal velja einn einstakling eldri en 12 ára sem hlýtur svokölluð Hvatningarverðlaun Strandabyggðar. Verðlaunin skulu veitt íþróttamanni sem sýnir ríkan áhuga á sinni íþróttagrein, er góður félagi og góð fyrirmynd.

Hér er hægt að skoða reglur sveitarfélagsins um val á Íþróttamanni ársins

Tilnefningar sendist á netfangið strandabyggd@strandabyggd.is til og með 15. janúar 2026.

Tómstunda-, íþrótta- og menningarnefnd

Til baka í yfirlit