Fara í efni

Tilnefningar um íþróttamann ársins 2019

27.12.2019
Auglýst er eftir tilnefningum um íþróttamann ársins 2019 í Strandabyggð. Senda skal tilnefningar ásamt rökstuðningi á netfangið tomstundafulltrui@strandabyggd.is, eigi síðar en 8. ja...
Deildu

Auglýst er eftir tilnefningum um íþróttamann ársins 2019 í Strandabyggð. Senda skal tilnefningar ásamt rökstuðningi á netfangið tomstundafulltrui@strandabyggd.is, eigi síðar en 8. janúar 2020. Allir mega senda inn tilnefningu og frjálst er að nefna fleiri en einn aðila, en viðkomandi þurfa að hafa haft lögheimili í Strandabyggð á síðastliðnu ári. Útnefning er fyrst og fremst hugsuð sem viðurkenning fyrir íþróttaafrek, framlag til íþróttastarfs og hvatning til frekari afreka.

 

Samkvæmt reglugerð um útnefningu á íþróttamanni ársins hefur Tómstunda-, íþrótta- og menningarnefnd umsjón með valinu á ári hverju. Upplýst verður um valið á íþrótta- og lýðheilsuhátíð Grunnskólans á Hólmavík fimmtudaginn 16. janúar 2020.

 

Viðurkenningin var fyrst veitt með þessu sniði fyrir árið 2012, þá hlaut Ingibjörg Emilsdóttir nafnbótina íþróttakona ársins og Jamison Ólafur Johnson fékk sérstök hvatningarverðlaun. Sigríður Drífa Þórólfsdóttir var hins vegar valin íþróttakona ársins 2013, en Trausti Rafn Björnsson fékk þá sérstök hvatningarverðlaun. Árið 2014 hlaut Jamison Ólafur Johnsson titilinn og sérstök hvatningarverðlaun fékk Ingibjörg Benediktsdóttir. Íþróttamaður ársins 2015 var Rósmundur Númason og Vala Friðriksdóttir fékk sérstök hvatningarverðlaun. Árið 2016 hlaut Ragnar Bragason titilinn og Friðrik Heiðar Vignisson fékk sérstök hvatningarverðlaun hlaut. Árið 2017 hlaut Jón Eðvald Halldórsson titilinn og sérstök hvatningarverðlaun fékk Hilmar Tryggvi Kristjánsson. Á síðasta ári hlaut Birkir Stefánsson titilinn íþróttamaður ársins og Jóhanna Rannveig Jánsdóttir fékk hvatningarverðlaunin. Handhafi viðurkenningarinnar hlýtur til vörslu í eitt ár farandbikar sem íþróttafélag lögreglumanna á Hólmavík gefur.

Tómstunda-, íþrótta- og menningarnefnd Strandabyggðar hvetur alla til að nýta þetta tækifæri til að minnast þeirra afreka sem íþróttafólk okkar hefur unnið á liðnu ári.

Til baka í yfirlit