Fara í efni

Tilkynning frá Félagsþjónustusvæðum Vestfjarða

10.01.2013
Í ljósi umfjöllunar um kynferðisbrotamál í Kastljósi undanfarna daga vilja félagsþjónustur á Vestfjörðum (Félagsþjónustan við Djúp, Félagsþjónusta Ísafjarðarbæjar, Félags...
Deildu

Í ljósi umfjöllunar um kynferðisbrotamál í Kastljósi undanfarna daga vilja félagsþjónustur á Vestfjörðum (Félagsþjónustan við Djúp, Félagsþjónusta Ísafjarðarbæjar, Félagsþjónusta Stranda- og Reykhólahrepps og Félagsþjónustan í Vestur-Barðastrandarsýslu) leggja áherslu á mikilvægi þess að þeir sem hafa orðið fyrir slíkri reynslu fái viðeigandi aðstoð og stuðning. Félagsmálastjórar á Vestfjörðum, veita aðstoð í slíkum málum og þeir sem vilja eru hjartanlega velkomnir til viðtals. Jafnframt er bent á samtökin Stígamót eða Sólstafi Vestfjarða.

 

Elsa Reimarsdóttir, félagsmálastjóri í Vesturbyggð

Guðný Hildur Magnúsdóttir, félagsmálastjóri í Bolungarvík og Súðavík

Hildur Jakobína Gísladóttir, félagsmálastjóri Stranda- og Reykhólahrepps

Margrét Geirsdóttir, sviðsstjóri fjölskyldusviðs Ísafjarðarbæjar

Til baka í yfirlit