Fyrir liggur deiliskipulag að hverfinu og búið er að auglýsa fyrri verkhluta. Á næstu dögum verður gengið frá samningi við verktaka um þá vinnu.
Til að glöggva sig betur á umfangi og uppbyggingu svæðisins, ákvað sveitarstjórn að láta hanna og gera þrívíddarmyndband af hverfinu og hér er það komið. Það gefur betri tilfinningu fyrir því hvernig hverfið mun líta út. Það var fyrirtækið Envalys ehf (https://envalys.is/) sem hannaði myndbandið.
Hér er tengill á myndbandið https://vimeo.com/1180166594.
Deiliskipulag Brandskjóla má finna hér: Deiliskipulag - Brandskjól / Greinagerð með deiliskipulagi Brandskjóla
