Kjörskrá verður aðgengileg á skrifstofu Strandabyggðar frá 8. ágúst.
Kjörstaður verður í Hnyðju, Höfðagötu 3. Nánari upplýsingar um opnunartíma verður auglýst þegar nær dregur.
Utankjörfundaratkvæðagreiðsla er þegar hafin og er Sýslumaðurinn á Vestfjörðum með opið virka daga sem hér segir:
- Ísafjörður, Hafnarstræti 1, kl. 9:00-15:00 en föstudaga kl. 09:00-14:00.
- Hólmavík, Hafnarbraut 25, 2.hæð, kl. 09:00-13:00 en föstudaga kl.9:00-12:00.
- Patreksfjörður, Aðalstræti 92, kl. 09:00-12:00 og 13:00-15:00 en föstud. kl. 09:00-12:00.
Þegar nær dregur kjördegi verða settar inn á svæði sýslumanna á vefnum www.island.is, upplýsingar um fleiri kjörstaði, um atkvæðagreiðslu á sjúkrahúsum og dvalarheimilum í umdæminu og eftir atvikum lengdan tíma sem opið verður á skrifstofum embættisins.
Upplýsingar um utankjörfundarstaði hjá sýslumönnum má finna hér: Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar | Sýslumenn
Kynningarvefur landskjörstjórnar um þjóðaratkvæðagreiðslu 2026: Þjóðaratkvæðagreiðsla 29. ágúst 2026 | Upplýsingavefur landskjörstjórnar
Upplýsingavefur landskjörstjórnar um framkvæmd þjóðaratkvæðagreiðslu 2026: Kjósendur | Ísland.is
Upplýsingar um kjörskrá vegna þjóðaratkvæðagreiðslu 2026: Þjóðaratkvæðagreiðsla 2026 | Þjóðskrá
Yfirkjörstjórn Strandabyggðar
