Fara í efni

Sveitarstjórnarkosningar 2026

06.03.2026
Kjörstjórn Strandabyggðar auglýsir eftir framboðslistum vegna sveitarstjórnarkosninga sem fram fara laugardaginn 16. maí 2026.
Deildu

Meðmælasöfnun framboða verður í ár rafræn í fyrsta sinn í mörgum sveitarfélögum, þar á meðal í Strandabyggð.

Kerfið hefur verið opnað  fyrir söfnun. Mælst er til þess að samtök sem hyggjast bjóða fram stofni rafræna meðmælasöfnun fyrir framboð sitt.

Einnig verður hægt að skila meðmælum á pappír.

Leiðbeiningar um söfnun meðmæla má finna á:
https://island.is/stofna-medmaelasoefnun-vegna-frambods-til-sveitarstjornar

Ýmsar leiðbeiningar fyrir kjósendur og framboð má finna hér:
https://island.is/v/sveitarstjornarkosningar-2026

  • Viðmiðunardagur kjörskrár er 8. apríl 2026 kl. 12:00. Skráning lögheimilis þann dag segir til um hvar kjósandi kýs.
  • 10. apríl 2026 kl. 12:00. Framboðsfrestur rennur út.
  • 10. apríl 2026 kl. 11:00-12:00. Kjörstjórn tekur við framboðum í Félagsheimilinu á Hólmavík. Að lokinni móttöku framboða mun kjörstjórn funda með umboðsmönnum framboðslista.
  • 10. apríl Kjörskrá auglýst. Hægt verður að fletta upp hvort einstaklingur sé á kjörskrá eftir þennan dag.
  • 13. apríl - Yfirkjörstjórnir sveitarfélaga tilkynna um gild framboð
  • 17.apríl - Utankjörfundaratkvæðagreiðsla hefst.

Kjörfundur í Strandabyggð fer fram í Hnyðju í Þróunarsetri 16. maí 2026 kl. 10:00 til 18:00.

Kjörstjórn Strandabyggðar

Til baka í yfirlit