Í gær var haldinn fyrsti fundur nýrrar sveitarstjórnar í Strandabyggð. Nýr oddviti var kjörinn Hrafnhildur Þorsteinsdóttir fyrir G-lista Vegvísis og varaoddviti Sigurbjörn Rafn Úlfarsson fyrir B-lista framsóknar og óháðra. Einnig var kosið í fastanefndir sveitarfélagsins. Næsti fundur verður haldinn 9. júní. Erindi fyrir þann fund þurfa að berast á strandabyggd@strandabyggd.is í síðasta lagi á fimmtudag. Fundargerðina má finna á vef sveitarfélagsins eða hér: fundargerð fundar 1391.
Sveitarstjórn og sveitarstjóra 2022-2026 þökkum við samstarfið, trúnaðarstörf fyrir sveitarfélagið og óskum þeim velfarnaðar.
