Fara í efni

Sveitarstjóri Strandabyggðar

18.07.2026
Dagrún Fanný Liljarsdóttir hefur verið ráðin sveitarstjóri Strandabyggðar
Deildu

Sveitarstjórn Strandabyggðar hefur ráðið Dagrúnu Fanný Liljarsdóttur í starf sveitarstjóra. 

Dagrún starfar sem verkefnastjóri þjónustu hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. Þar sinnir hún skrifstofustjórn, rekstri, starfsmannamálum og umbótastarfi. Áður starfaði hún hjá Barnavernd Reykjavíkur og öðlaðist reynslu af opinberri stjórnsýslu, málastjórn og samstarfi við fjölbreytta hagaðila. Auk þess hefur Dagrún reynslu af rekstri tjaldsvæðis, veitingastjórn, tónlistarkennslu barna og leikskólastarfi sem og vinnu með fólki með geðrænan vanda, fíknivanda og umönnun aldraðra.

Dagrún lauk meistaragráðu í stjórnun og stefnumótun frá Háskóla Íslands árið 2016 og BA-gráðu í félagsráðgjöf frá Háskóla Íslands árið 2014. Hún hefur jafnframt lokið námi í mannauðsstjórnun og bókhaldi, auk þess að vera menntuð sjúkraliði. 

Sveitarstjórn býður Dagrúnu velkomna til starfa og hlakkar til samstarfsins á komandi árum

Til baka í yfirlit