Kæru íbúar Strandabyggðar,
Nú er fyrsti mánuður þessa árs brátt liðinn og við hæfi að kanna stöðu ýmissa mála í sveitarfélaginu. Ég stikla á stóru en vona að þessi upptalning gefi ykkur engu að síður góða mynd af þeim verkefnum sem eru í gangi í sveitarfélaginu:
- Innleiðing á nýju fyrirkomulagi sorphirðu. Nú er byrjað að innleiða ný lög um sorphirðu sem sett voru á fyrir nokkrum árum. Við höfum tekið okkur góðan tíma í að undirbúa þessa framkvæmd, en nú er allt komið af stað. Þrjár nýjar tunnur og ílát undir lífrænan úrgang skulu fara að hverju heimili í þéttbýli samkvæmt lögunum. Sum heimili eru með jarðgerðarvélar og þurfa því ekki ílát fyrir lífrænan úrgang, en öll þurfum við að flokka pappa, plast og almennan úrgang. Fyrirkomulag sorphirðu er með aðeins öðrum hætti í dreifbýli. Á heimasíðu Strandabyggðar má finna gagnlegar upplýsingar um þetta nýja fyrirkomulag, sem og svör við algengum spurningum. Þetta er hagsmunamál okkar allra.
- Úthlutun almenns byggðakvóta. Strandabyggð fékk um 100 tonn á fiskveiðiárinu 2025/2026 auk um 20 tonna sem ekki náðist að veiða á síðasta fiskveiðiári og voru því rúm 120 tonn til skiptanna. Sveitarstjórn ákvað samhljóða að 75% skyldi úthlutað samkvæmt aflareynslu og 25% jafnt á alla umsækjendur. Ekki var sótt um undanþágu frá vinnsluskyldu, enda mikilvæg að efla og styðja fiskvinnsluna á staðnum. Sjómenn höfðu sett fram óskir sínar skriflega og var hægt að verða við hluta þeirra. Framundan er fundur sveitarfélagsins með sjómönnum og fiskvinnslunni.
- Brandskjól. Hönnunarvinna varðandi götur og gangstíga í Brandskjólum, er komin af stað. Búið er að gera drög að útliti sem fyrirtækin Landmótun og VBV Verkfræðistofa vinna nú með. Mikilvægt er að þessi vinna þokist áfram þannig að framkvæmdir geti hafist í vor. Það er mikil eftirspurn eftir íbúðarhúsnæði á Hólmavík. Þetta er okkar svar.
- Bókasafnið. Vinna við þrif á bókasafninu er hafin, í samráði við verkfræðistofuna EFLU. Innan einhvers tíma, verður hægt að heimsækja bókasafnið aftur og það verður stór stund fyrir marga. Nánar verður sagt frá framvindu mála á næstunni.
- Lagning ljósleiðara á Hólmavík. Gert ráð fyrir að vinna á vegum Mílu hefjist í ágúst. Samningur liggur fyrir og búið er að funda með fulltrúum Mílu um framkvæmdina og í hvaða röð götur og byggingar verða tengdar við ljósleiðarakerfið.
- Hótel á Hólmavík. Unnið er að lokahönnun hótelsins og næstu skref hjá sveitarfélaginu eru að stofna lóðina og gera lóðaleigusamning. Er stefnt að því að sá samningur verði frágengin í febrúar/mars. Hótelbygging verður mikil lyftistöng fyrir samfélagið og gæti haft mikil margföldunaráhrif. Einhverjir íbúar gætu til að mynda hugsað sér að stofna ferðaþjónustufyrirtæki og bjóða hótelgestum afþreyingu og aðra þjónustu?
- Grunnskólinn, eldri hlutinn. Á þessu ári verður gerð könnun af fagaðilum á ástandi húsnæðisins. Reynist sá hluti nothæfur, sem við vonum, þarf að kostnaðarmeta úrbætur og þar verður tekið mið af þarfagreiningu starfsfólks og stjórnenda grunnskólans. Framkvæmdir gætu síðan hafist á næsta ári.
Þetta er aðeins brot af þeim verkefnum sem eru gangi hjá okkur í Strandabyggð. Í viðbót má nefna verkefni í fráveitumálum, vatnsveitu og varmaskiptakerfi til að lækka hitunarkostnað í sundlauginni ofl.
Verkefni sveitarfélagsins á þessu ári miðast við að styrkja innviðina okkar, draga úr innviðaskuldinni, efla samfélagið, mæta eftirspurn eftir húsnæði og skapa meiri tekjur fyrir sveitarfélagið. Það er leiðin áfram.
Áfram Strandabyggð!
