Fara í efni

Sveitarfélagið selur hlut sinn í Hornsteinum eignarhaldsfélagi

03.03.2026
Sala á 44,16% hlut sveitarfélagsins í Hornsteinum eignarhaldsfélagi
Deildu

Kæru íbúar Strandabyggðar,

Þann 23. febrúar s.l. var formlega gengið frá sölu á 44,16% eignarhlut Strandabyggðar í Hornsteinum, eignarhaldsfélagi. Söluverð hlutarins er kr. 15.000.000.- Kaupendur voru Kaupfélag Steingrímsfjarðar, Trésmiðjan Höfði og Hornsteinar eignarhaldsfélag, sem nýttu sér þannig forkaupsrétt sinn. 

Það er ánægjuefni fyrir sveitarfélagið að hafa selt hlutinn og er söluverð nokkuð hærra en nafnverð.  Það er svo óskandi að hluthafar/kaupendur hlutarins sjái færi á að efla verslunarkjarnan, stækka húsnæðið og fjárfesta þannig að aukin þjónusta verði í boði fyrir íbúa Strandabyggðar.  Framundan er amk mikil uppbygging á svæðinu, sem rétt væri að mæta með aukinni þjónustu.

Leitað var til Lögmanns sveitarfélagsins hvað þessa framkvæmd alla varðar.

Til baka í yfirlit