Fara í efni

Sundlaugin á Hólmavík lokuð vegna bilunar

27.01.2026
Sundlaugin á Hólmavík er lokuð vegna bilunar. Verið er að vinna að viðgerðum.
Deildu

Hitunarkerfi sundlaugarinnar er bilað og verður sundlaugin og heitu pottarnir lokaðir á meðan unnið er að viðgerðum. Ekki er vitað hvað það mun taka langan tíma þar sem beðið er eftir varahlutum en gert er ráð fyrir lokun næstu tvær vikur að minnsta kosti. 

Það verður tilkynnt þegar sundlaugin og heitu pottarnir opna aftur. 

Íþróttasalur, Flosaból og sauna er opið samkvæmt opnunartíma Íþróttamiðstöðvar Strandabyggðar. 

Til baka í yfirlit