Fara í efni

Styrkur í ærslabelg

28.12.2018
Á Hamingjudögum í sumar hófst söfnun fyrir ærslabelg því eins og allir vita mun slíkur hoppbelgur veita mörgum ómælda hamingju. Stjórn Sparisjóðs Strandamanna ákvað nú í desembe...
Deildu
Á Hamingjudögum í sumar hófst söfnun fyrir ærslabelg því eins og allir vita mun slíkur hoppbelgur veita mörgum ómælda hamingju. 

Stjórn Sparisjóðs Strandamanna ákvað nú í desember að styrkja söfnunina um kr. 170.000 og viljum við þakka kærlega fyrir þeirra rausnarlega framlag.

Einnig barst framlag frá einstaklingi kr. 60 þúsund í október og við þökkum kærlega fyrir það rausnarlega framlag.


Söfnunin heldur áfram og viljum við hvetja fyrirtæki og stofnanir til að leggja sitt af mörkum.  Nú er til í sjóðnum tæpar 340 þúsund krónur.
Tekið verður við frjálsum framlögum á reikning í Sparisjóði Strandamanna 1161-15-202018 kt. 570806-0410. 
Til baka í yfirlit