Fara í efni

Strandabyggð óskar eftir að ráða veiðimenn til refaveiða

31.03.2026
Strandabyggð óskar eftir að ráða veiðimenn til refaveiða á tveimur svæði 6 og svæði 1 í Strandabyggð.
Deildu

Refaveiði á svæði 6

Strandabyggð óskar eftir að ráða veiðimenn til refaveiða á svæði 6 í Strandabyggð sem nær frá Mórillu að Ísafjarðará.

Svæðinu er nú skipt niður í tvö svæði og er sótt um refaveiðar í hverju svæði fyrir sig.

· Svæði 6.a: Ísafjarðará að Þverá

· Svæði 6.b: Þverá að Mórillu

Samkvæmt reglum Strandabyggðar um refaveiðar er einungis veiðimönnum með samning við sveitarfélagið greitt fyrir refaveiðar. Ráðinn veiðimaður sér sjálfur um allan búnað til veiðanna og skal hann ekki brjóta í bága við lög og reglugerðir

Umsóknum skal skila á skrifstofu Strandabyggðar, Hafnarbraut 25, 510 Hólmavík eða á netfangið strandabyggd@strandabyggd.is fyrir lok dags þann 10. apríl nk.

Umsóknum þarf að fylgja staðfesting á því að veiðikort umsækjanda sé í gildi.

Hér má finna reglur Strandabyggðar um refaveiðar í Strandabyggð.

Refaveiði á svæði 1

Strandabyggð óskar eftir að ráða veiðimenn til refaveiða á svæði 1 í Strandabyggð, nánar tiltekið Stikuháls að Ennishálsi.

Samkvæmt reglum Strandabyggðar um refaveiðar er einungis veiðimönnum með samning við sveitarfélagið greitt fyrir refaveiðar. Ráðinn veiðimaður sér sjálfur um allan búnað til veiðanna og skal hann ekki brjóta í bága við lög og reglugerðir

Umsóknum skal skila á skrifstofu Strandabyggðar, Hafnarbraut 25, 510 Hólmavík eða á netfangið strandabyggd@strandabyggd.is fyrir lok dags þann 10. apríl nk.

Umsóknum þarf að fylgja staðfesting á því að veiðikort umsækjanda sé í gildi.

Hér má finna reglur Strandabyggðar um refaveiðar í Strandabyggð.

Til baka í yfirlit