Arnar S. Jónsson var einn af þremur efstu í vali á Strandamanni ársins 2011 sem fréttavefurinn www.strandir.is stendur fyrir árlega. Jákvæðar umsagnir og ánægja íbúa segja allt um hversu vel Arnari hefur tekist til í starfi tómstundafulltrúa sem og fleiri verkefnum:
Í umsögnum með tilnefningum segir meðal annars að framkvæmdastjórn hans á Hamingjudögum á Hólmavík 2011 hafi verið frábær og "dagskráin skemmtilega blönduð" og við allra hæfi. Leikstjórn á leikritinu "Með táning í tölvunni" síðastliðið vor er líka nefnd til sögu og sagt að það hafi verið "hrikalega skemmtilegt leikrit".
Kennslu Arnars í kvikmyndavali í Grunnskólanum á Hólmavík er hrósað í tilnefningum, stjórnun á félagsmiðstöðinni Ozon og þáttur hans í að landa aðalverðlaunum sem kvikmyndavalið vann í myndbandakeppni 66°Norður. Jákvæðni, drifkrafur og víðsýni eru sagðir kostir Arnars, einnig að hann "taki öllum hugmyndum vel" og sé "fyndinn og skemmtilegur", "virkilega duglegur", "æðislegur" og "algjör snillingur" (sjá frétt á strandir.is)
Sveitarfélagið Strandabyggð óskar Arnari til hamingju með þennan góða árangur.
