Fara í efni

Starf í boði: Leikskólastjóri á Hólmavík

31.08.2010
LeikskólinnLækjarbrekka á Hólmavík auglýsir eftir leikskólastjóra. Í skólanum eru um 30börn í tveimur deildum og þar dvelja börn frá 1 árs aldri. Einkunnarorð skólanseru: Gleði?...
Deildu

LeikskólinnLækjarbrekka á Hólmavík auglýsir eftir leikskólastjóra. Í skólanum eru um 30börn í tveimur deildum og þar dvelja börn frá 1 árs aldri. Einkunnarorð skólanseru: Gleði– Virðing – Vinátta.

 

Meginhluverk leikskólastjóra er að:

# Veita skólanum faglega forystu á sviði kennslu og þróunar ískólastarfi 
# Stýra og bera ábyrgð á daglegri starfsemi, fjármálum og rekstri skólans
# Bera ábyrgð á stefnumörkun skólans í samstarfi við sveitarstjórn

 

Menntunar- og færnikröfur:
# Leikskólakennaramenntunáskilin
# Menntun, hæfni og reynsla í stjórnun æskileg
# Færni í mannlegum samskiptum

# Áhugi á börnum og samskiptum við þau

# Sjálfstæð vinnubrögð, skipulagshæfileikar, frumkvæði, áhugi og metnaður í starfi

 

Hólmavík er í 234 km fjarlægð fráReykjavík og tilheyrir sveitarfélaginu Strandabyggð sem rúmlega 500 manns búaí. Þar er góð þjónusta, öflugur grunn- og tónlistaskóli, fjölbreyttmenningarstarf og góð íþrótta- og útivistaraðstaða í einstaklega falleguumhverfi. Nánar á  www.strandabyggd.is og www.123.is/laekjarbrekka.

 

Umsóknarfrestur er til 15. september næstkomandi.Umsóknir, ásamt ferilskrá og meðmælendum, berist á skrifstofu Strandabyggðar,Hafnarbraut 19, 510 Hólmavík, netfang: holmavik@holmavik.is, sem einnig gefur nánari upplýsingar í s. 451-3510.

 

Staðan er laus frá og með 1. október 2010.

 

Hólmavík,  31. ágúst 2010
Sveitarstjóri Strandabyggðar

Til baka í yfirlit