Strandabyggð verður með safnstað fyrir almyrkvann á flugvellinum á Arngerðareyri og er tilvalið fyrir íbúa Strandabyggðar og gesti að keyra yfir Steingrímsfjarðarheiði og horfa á almyrkvann þar.
Á safnstað verða merkt bílastæði, salerni og sjá starfsmenn Strandabyggðar um umferðarstýringu.
Hér að neðan má sjá kort hvar flugvöllurinn á Arngerðareyri er staðsettur:

Mynd: map.is

Mynd: map.is
Á safnstað í Strandabyggð er almyrkvinn sýnilegur í 40 sekúndur og deildarmyrkvi varir í rúmlega tvær klukkustundir. Deildarmyrkvi hefst kl: 16:43:54 og lýkur 18:44:18 og Almyrkvi hefst kl: 17:45:01 og lýkur 17:45:41.
Á Hólmavík er almyrkvi ekki sýnilegur en þar verður hægt að sjá deildarmyrkva. Deildarmyrkvi hefst kl: 16:44:32 og lýkur 18:44:42. Deildarmyrkvi nær hámarki á Hólmavík kl: 17:45:53.
Við hvetjum fólk til að vera tímanlega á ferðinni og sýna þolinmæði í umferð.
Stjórnvöld hvetja fólk til að njóta þessa sögulega atburðar heima hjá sér eða í sínu nærumhverfi og getur hver og einn lagt sitt af mörkum við að tryggja almannaöryggi og vernd viðkvæmra svæða.

Mynd: solmyrkvi2026.is
Sólmyrkvagleraugu eru fáanleg fyrir íbúa í boði Strandabyggðar á skrifstofu Strandabyggðar mánudaga til fimmtudaga kl 10:00-14:00 og föstudaga kl 10:00-12:00 og í Íþróttamiðstöð Strandabyggðar alla daga kl 09:00-21:00.
Nauðsynlegt er að nota örugg og vottuð sólmyrkvagleraugu til að fylgjast með. Örugg sólmyrkvagleraugu eru með sérstakar síur sem draga úr hættulegri útfjólublárri og innrauðri geislun. Nota þarf gleraugun í deildarmyrkva, bæði fyrir og eftir almyrkva. Aðeins á meðan almyrkvi stendur yfir, þegar tunglið hylur sólina að fullu, er öruggt að taka þau af í stutta stund. Setjið þau aftur upp um leið og einhver hluti sólarinnar verður sýnilegur.
Hér má nálgast upplýsingar stjórnvalda: Almyrkvi á sólu 12. ágúst | Ísland.is
Hér má nálgast upplýsingar um Almyrkvann: Samantekt um almyrkvann á sólu 12. ágúst 2026 á Íslandi | solmyrkvi2026.is | Sólmyrkvi 2026
