Fara í efni

Sólmyrkvagleraugu fyrir íbúa Strandabyggðar

10.07.2026
Sveit­ar­fé­lagið tók þátt í sameig­in­legri pöntun á sólmyrkv­agler­augum fyrir íbúa á Vest­fjörðum og gefur öllum íbúum Strandabyggðar sólmyrkvagleraugu.
Deildu

Gler­augun verða afhent íbúum á skrifstofu Strandabyggðar í næstu viku 13.-17. júlí á opnunartíma þ.e. 10-14 mánudag - fimmtudags og 10-12 á föstudagþegar nær dregur almyrkv­anum sem verður 12. ágúst 2026. Einnig verður hægt að sækja gleraugu í Íþróttamiðstöð á opnuanrtíma hennar. Sigurður Marinó Þorvaldsson er í stýrihóp v. almyrkvans fyrir hönd Strandabyggðar og á myndinni hér að ofan hefur hann afhent oddvita, Hrafnhildi Þorsteinsdóttur fyrstu gleraugun.

Almyrkvinn 12. ágúst 2026 varir lengst í 2m 13s við Látrabjarg í Vesturbyggð á Vestfjörðum. Er það lengsti mögulegi almyrkvi á Íslandi. Ef vel viðrar eru því miklar líkur á að Vesturbyggð verði vinsælasti áfangastaður almyrkvaunnenda sem leggja leið sína á Vestfirði. Þetta er fyrsti almyrkvinn á sólu á Vestfjörðum síðan 30. mars 1131.

Árneshreppur og Kaldrananeshreppur eru einu sveitarfélögin utan alskuggans á Vestfjörðum. Almyrkvi sést því ekki frá Drangsnesi, Hólmavík, Djúpavík og Gjögri. Fólk sem þar býr er eindregið hvatt til þess að ferðast inn í almyrkvaslóðina. Safnstaður fyrir áhugasama sólmyrkvaskoðendur er t.d. á flugvellinum á Arngerðareyri og því tilvalið að fá sér bíltúr yfir Steingrímsfjarðarheiðina.

Alskuggi tunglsins er yfir Vestfjörðum í 3 mínútur og 27 sekúndur. Hann snertir fyrst Straumnes á Hornströndum kl. 17:43:28 en yfirgefur Vestfjarðarkjálkann við Sigluneshlíðar við Barðaströnd kl. 17:46:54.

Til baka í yfirlit