Fara í efni

Skúra, skrubba og baka :)

30.09.2011
Kæru foreldraÞað er búið að vera mjög gaman hjá okkur í vikunni.Í sameiginlegri söngstund sungum við lög sem nemendur í 8. – 9. bekk völdu og var þetta seinni vikan sem þeir velj...
Deildu

Kæru foreldra

Það er búið að vera mjög gaman hjá okkur í vikunni.

Í sameiginlegri söngstund sungum við lög sem nemendur í 8. – 9. bekk völdu og var þetta seinni vikan sem þeir velja lög. Það fer að styttast í að við fáum að velja fjögur lög sem við viljum að allir syngi. Þannig að það væri mjög gott kæru foreldrar ef þið gætuð aðstoðað okkur með það. Það er að segja senda mér heiti uppáhaldslags og hver flytur það.

Við vorum dugleg að vinna að markmiðum okkar í vikunni bæði í íslensku og stærðfræði. Flestir í 1. bekk hafa náð að klára tvær Sprotabækur.

Á þriðjudeginum var stafurinn A- a kynntur. Þá unnu nemendur verkefnablöð sem reyndu á fínhreyfingar þeirra.

Við byrjuðum miðvikudaginn á því að skrifuðu allir tvö orð sem áttu A – a sem fyrsta staf í orðasafnið sitt. Fórum í skrift og skrifuðum 3 – 4 línur. Þá unnu allir að markmiðum sínum í íslensku og stærðfræði. Við máluðum sandmyndirnar okkar og komu þær mjög vel út.

Á fimmtudeginum fórum við í matreiðslu í félagheimilinu. Við byrjuðum á því að skera allskonar ávexti í litla bita (vínber, ananas, melónu, mandarínu, epli, peru og banana). Síðan þræddum við þá ávexti sem okkur þóttu bestir upp á pinna. Þá var hnoðað í pizzadeig, skinka skorin niður, pepperoneið og osturinn sett í skál. Þá skiptumst við á að fletja út degið og skárum svo út karla og grasker. Hver og einn setti á sína pizzu það sem hann vildi. Þegar pizza veislan var búin þurftu allir að vaska upp eftir sig. Þá þurrkuðu þau af borðunum og stóluðu upp. Salurinn var skúraður og mottan ryksuguð.

Á föstudeginum var unnið að markmiðum í Sprota. Þá fórum við í heimakrók þar sem við fórum meðal annars í rím, stafaleik, við töldum orð í setning og klöppuðum atkvæði. Skólavikan endaði svo á því að starfsfólk skólans frumflutti tvö lög sem áttu svo að vera skemmtiatriði á árshátið Strandabyggðar um kvöldið.

Takk fyrir vikuna,

Kveðja Vala

Til baka í yfirlit