Þegar skuldastaða Strandabyggðar er skoðuð, er mikilvægt að hafa forsendur hennar og þróun undanfarinna ára í huga.
Undanfarin þrjú ár eða svo, hefur sveitarfélagið fjárfest í menntastofnunum sveitarfélagsins, grunnskólanum og leikskólanum, fyrir yfir 500 milljónir. Grunnskólinn greindist myglaður í nóvember 2022, nokkuð sem marga grunaði. Við tók saga sem allir þekkja og í dag er yngri hluti skólans uppgerður, nýr og betri skóli. Þarna hafði sveitarstjórn ekkert val. Það varð að ráðast í mikla endurnýjun og uppbyggingu. Ákveðið var að nýta yngri hlutann því hann var alls ekki ónýtur. Samt voru uppi raddir um að rífa allt húsið og byggja nýtt.
Leikskólalóðin var sömuleiðis verkefni sem varð að vinna. Fyrrverandi sveitarstjórn hafði reynt að fá verkið unnið, en án árangurs. Núverandi sveitarstjórn lauk því og þrátt fyrir talsverðan ófyrirséðan kostnað, er niðurstaðan frábær leikskólalóð sem var löngu tímabær.
Innviðaskuld Strandabyggðar er slík, að hér þyrfti að fjárfesta fyrir 150-200 milljónir (m) á ári í amk. 10 ár, til að komast út úr því ástandi sem blasir við. Sé litið á nokkur dæmi um það sem liggur fyrir og gróflega áætlaðan kostnað við uppbyggingu, má nefna:
Þróunarsetrið – 100-120m, félagsheimilið – 100-200m, ráðhúsið – 50m, götur og gangstéttir – 100m, hafnarsvæðið – 70-80, innviðauppbygging í Brandskjólum – 350m, innviðauppbygging á Jakobínutúni (Hótelbygging ofl.) – 100+, o.s.frv. Þetta eru miklar upphæðir fyrir sveitarfélagið, en hjá þessu verður ekki komist til lengri tíma.
Þess vegna þarf að forgangsraða, hafa þor, áræðni og staðfestu til að ákveða hvað eigi að gera og hvað ekki. Það er ekki öfundsvert verk, en til þess erum við kosin. Næsta sveitarstjórn mun eiga þar krefjandi en skýrt verk fyrir höndum, þar sem heildarhagsmunir samfélagsins verða að ráða för.
Þess má geta, að raðhúsið á myndinni var til sölu í Garðabæ árið 2023 og var ásett verð 170 milljónir. Það setur okkar framkvæmdaþörf kannski í svolítið annað ljós.
Áfram Strandabyggð!
