Kær íbúar Strandabyggðar,
Eins og sagt hefur verið frá og ykkur er sjálfsagt kunnugt, flutti skrifstofa Strandabyggðar rétt fyrir jólin í húsnæðið að Hafnarbraut 25. Við erum búin að koma okkur nokkuð vel fyrir þar og viljum því gjarnan bjóða íbúum að kíkja í heimsókn og sjá aðstöðuna.
Mánudaginn 22. febrúar og þriðjudaginn 23. febrúar, verður því opið hús á skrifstofutíma, kl 10-14 og við hvetjum íbúa til að kíkja við og skoða.
Vinsamlegast viðhafið sóttvarnir og notið grímu, takk.
Við hlökkum til að sjá ykkur.
Kveðja
Starfsfólk skrifstofu Strandabyggðar
Skrifstofa Strandabyggðar - opið hús!
17.02.2021
Kær íbúar Strandabyggðar,Eins og sagt hefur verið frá og ykkur er sjálfsagt kunnugt, flutti skrifstofa Strandabyggðar rétt fyrir jólin í húsnæðið að Hafnarbraut 25. Við erum búi...
