Leikskólinn Lækjarbrekka auglýsir eftir leikskólakennara/leiðbeinanda í 100% starf og er vinnutíminn 8:00-16:00. Einnig auglýsum við eftir starfsmanni í 50% starf og er vinnutíminn 12:00-16:00.
Starfsmaður þarf að geta hafið störf sem fyrst.
Við leikskólann er unnið metnaðarfullt starf þar sem barnið er í brennidepli. Leitað er eftir öflugu starfsfólki sem hefur gaman af börnum, býr yfir góðri samskiptahæfni og hefur ríka þjónustulund. Einnig er skipulagshæfni, frumkvæði í starfi og jákvæðni mikilvægur kostur.
Nánari starfslýsingar er hægt að nálgast á skrifstofu leikskólastjóra eða í síma 451 3411. Einnig er hægt að senda tölvupóst á leikskólastjóra í netfangið: leikskolastjori@strandabyggd.is
Umsækjendur eru beðnir um að skila inn umsóknum til leikskólastjóra eða á skrifstofu sveitarfélagsins að Höfðagötu 3. Umsóknafrestur er til 22. júlí 2015. Þeir sem eiga eldri umsóknir um störf á leikskólanum Lækjarbrekku eru beðnir um að endurnýja umsóknir sínar. Leikskólastjóri áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum standist þær ekki kröfur.
Skemmtilegt og gefandi starf laust til umsóknar
16.07.2015
Leikskólinn Lækjarbrekka auglýsir eftir leikskólakennara/leiðbeinanda í 100% starf og er vinnutíminn 8:00-16:00. Einnig auglýsum við eftir starfsmanni í 50% starf og er vinnutíminn 12:00-16:00. Starfsmaður þarf að geta hafið störf sem fyrst.
