Fara í efni

Skemmdarverk á geymslusvæði Strandabyggðar

11.05.2026
Unnin hafa verið skemmdarverk á eignum á geymslusvæðinu við Hnitbjörg.
Deildu

Kæru íbúar Strandabyggðar, í ljós hefur komið að unnin hafa verið skemmdarverk á nær öllum bílum og öðrum farartækjum á geymslusvæði Strandabyggðar við Hnitbjörg.  Aðkoman þar er vægast sagt ömurleg.  Flestar ef ekki allar rúður eru brotnar, glerbrot út um allt og ljóst að þarna hefur verið einbeittur vilji til að skemma.  Hvað sem fólki kann að finnast um það sem þarna er til geymslu þá eru þetta eignir íbúa sem þeir geyma á afmerktum svæðum og greiða fyrir það gjald og það er lágmark að fólki geti verið öruggt með sínar eignir þarna.  

Málið hefur verið tilkynnt til lögreglu og ef íbúar vita eitthvað um tildrög þessa máls, væri rétt að láta lögregluna á Hólmavík vita.

Til baka í yfirlit