Fara í efni

Samfélagsmiðstöð í Hnyðju

17.11.2026
Í Strandabyggð er verið að stíga spennandi skref í átt að fjölbreyttara og öflugra samfélagsstarfi með uppbyggingu Samfélagsmiðstöðvar Hnyðju á fyrstu hæð Þróunarsetursins á Hólmavík. Hnyðju er ætlað að verða hlýlegur og opinn samkomustaður þar sem íbúar á öllum aldri og af ólíkum uppruna geta hist, skapað, spjallað og notið samveru hvers annars.
Deildu

Hugmyndin að Hnyðju kviknaði út frá þeirri einföldu hugsun að samfélagið þurfi stað þar sem fólk getur komið saman. Stað þar sem hægt er að setjast niður með kaffibolla, hitta nágrannann, staður fyrir fjölskyldur og kynnast nýju fólki eða taka þátt í fjölbreyttu starfi.

Markmiðið er að efla félagsleg tengsl og skapa fleiri tækifæri til samveru í Strandabyggð. Í Hnyðju er stefnt að fjölbreyttri dagskrá þar sem eitthvað verður í boði fyrir fólk á öllum aldri. Þar má nefna föndur- og sköpunarstundir, foreldramorgna, bókakvöld, sögustundir, upplestra rithöfunda og ýmiss konar menningarviðburði.

Sérstök áhersla verður lögð á að skapa notalega aðstöðu fyrir börn og fjölskyldur. Þar verður komið upp barnahorni með leikföngum, bókum og efniviði til skapandi starfs, þar sem börn geta leikið sér á meðan foreldrar og aðrir gestir njóta samverunnar.

Bókmenntir verða einnig mikilvægur hluti starfseminnar og er fyrirhugað að Hnyðja verði jafnframt lítið útibú Héraðsbókasafnsins, þar sem íbúar geta nálgast fjölbreyttar bækur til útláns. Lögð verður áhersla á að bækur og viðburðir endurspegli fjölbreytileika samfélagsins, meðal annars með bókum á ólíkum tungumálum og fjölmenningarlegum samverustundum.

Hnyðja er hugsuð sem vettvangur fyrir hugmyndir og frumkvæði íbúa. Starfsemin verður ekki eingöngu bundin við fyrirfram ákveðna dagskrá heldur er vonast til að íbúar taki virkan þátt í að móta það sem þar fer fram. Kannski langar einhverjum að halda handavinnukvöld, deila þekkingu sinni, standa fyrir bókaklúbbi eða einfaldlega hitta annað fólk yfir kaffibolla. Allar slíkar hugmyndir eiga heima í Hnyðju.

Fjölbreytt samfélag verður til þegar fólk fær tækifæri til að hittast og kynnast. Með Hnyðju er vonast til að skapa rými þar sem kynslóðir mætast, ný tengsl myndast og ólíkur bakgrunnur og reynsla íbúa verða að styrkleika samfélagsins.

Hugmyndin að Samfélagsmiðstöð Hnyðju hefur hlotið samþykki sveitarstjórnar Strandabyggðar og er unnið að uppbyggingu starfseminnar í samstarfi við sveitarfélagið. Til að byrja með verður utanumhald starfseminnar í höndum Önnu Karenar Amin Kolbeins, verkefnastjóra, og og hefur verið sótt um styrki til að styðja við viðburðahald, efniskaup og áframhaldandi þróun verkefnisins.

En það sem mun skipta mestu máli fyrir framtíð Hnyðju er þátttaka íbúanna sjálfra. Hnyðja á að vera staður þar sem enginn þarf sérstaka ástæðu til að mæta. Þar sem það er í lagi að koma einn, með vinum eða með alla fjölskylduna. Þar sem hægt er að skapa eitthvað saman, læra eitthvað nýtt eða einfaldlega njóta þess að vera í góðum félagsskap. Við hlökkum til að sjá Hnyðju vaxa og dafna með íbúum Strandabyggðar og hvetjum alla til að fylgjast með, koma með hugmyndir og taka þátt. Dæmi um hópa sem geta óskað eftir að nýta rýmið: 

Foreldramorgnar, eldriborgarastarf, bókaklúbbar, spilahópar, ungmenni frá 18-25, nýbúahittingar, erlendir íbúar koma saman og handavinnuhópar. Einungis verður rukkað eilitlar 500 kr. í kaffisjóð Hnyðju.
Frekari upplýsingar um dagskrá og hvernig má bóka Hnyðju verður auglýst síðar.

Til baka í yfirlit