Fara í efni

Réttað í Strandabyggð

11.09.2026
Nú er haustið gengið í garð og leitir og réttarstörf að hefjast.
Strandabyggð í júlí 2026.
Deildu

Fyrstu réttardagarnir í Strandabyggð eru í dag, föstudag, en þá verður réttað í Skeljavíkurrétt við Hólmavík  kl. 16:00. Á morgun, laugardag, verður réttað í Krossárdalsrétt kl: 16:00.

Næstu réttir eru viku síðar, sunnudaginn 20. september, Kirkjubólsrétt kl. 14:00, í Staðarrétt kl: 15:00 og Kollafjarðarrétt kl 16:30.

Fólk er eindregið hvatt til að gera sér dagamun og kíkja í réttirnar í haust. Leitir og réttir eru nefnilega afskaplega hressandi og skemmtileg iðja, hvort sem menn eru í því hlutverki að rölta um fjöll, draga í dilka eða bara horfa á iðandi mannlífið sem blómstrar í kringum sauðfjárbúskapinn þegar hausta tekur.  

Strandabyggð í júlí 2026.
Til baka í yfirlit