Refaveiði á svæði 1
Strandabyggð óskar eftir að ráða veiðimenn til refaveiða á svæði 1 í Strandabyggð, nánar tiltekið Stikuháls að Ennishálsi.
Samkvæmt reglum Strandabyggðar um refaveiðar er einungis veiðimönnum með samning við sveitarfélagið greitt fyrir refaveiðar. Ráðinn veiðimaður sér sjálfur um allan búnað til veiðanna og skal hann ekki brjóta í bága við lög og reglugerðir
Umsóknum skal skila á skrifstofu Strandabyggðar, Hafnarbraut 25, 510 Hólmavík eða á netfangið strandabyggd@strandabyggd.is fyrir lok dags þann 7.maí nk.
Umsóknum þarf að fylgja staðfesting á því að veiðikort umsækjanda sé í gildi.
Hér má finna reglur Strandabyggðar um refaveiðar í Strandabyggð.
Refaveiði á svæði 2
Strandabyggð óskar eftir að ráða veiðimenn til refaveiða á svæði 2 í Strandabyggð, nánar tiltekið Ennisháls að Forvaða
Samkvæmt reglum Strandabyggðar um refaveiðar er einungis veiðimönnum með samning við sveitarfélagið greitt fyrir refaveiðar. Ráðinn veiðimaður sér sjálfur um allan búnað til veiðanna og skal hann ekki brjóta í bága við lög og reglugerðir
Umsóknum skal skila á skrifstofu Strandabyggðar, Hafnarbraut 25, 510 Hólmavík eða á netfangið strandabyggd@strandabyggd.is fyrir lok dags þann 7. maí nk.
Umsóknum þarf að fylgja staðfesting á því að veiðikort umsækjanda sé í gildi.
Hér má finna reglur Strandabyggðar um refaveiðar í Strandabyggð.
