Fara í efni

Öskudagssprell

05.03.2014
Í dag er öskudagur og í tilefni dagsins mættu flestir nemendur og starfsfólk skólans í búningum. Hefðbundin kennsla var í fyrstu tvo tímana en síðan var skóladagurinn brotinn upp með...
Deildu
Í dag er öskudagur og í tilefni dagsins mættu flestir nemendur og starfsfólk skólans í búningum. Hefðbundin kennsla var í fyrstu tvo tímana en síðan var skóladagurinn brotinn upp með öskudagssprelli. Nemendur tóku þátt í vinnu og leik í fjórum smiðjum:
  • Öskudagurinn - hefðir hér á landi og um allan heim
  • Saumaðir öskupokar
  • Stærðfræðiþrautir og leikir
  • Leikir og þrautir til að efla skynjun og athyglisgáfu.
Nemendur skemmtu sér vel við leik og vinnu á þessum óhefðbundna skóladegi.
Myndir frá skóladeginum má sjá hér
Til baka í yfirlit