Fara í efni

Opinn fundur með starfsfólki BUGL

21.01.2014
Á morgun, miðvikudaginn 22. janúar, verður hópur starfsfólks frá Barna- og unglingageðdeild staðsettur í Strandabyggð á vegum Foreldrafélags Grunnskólans á Hólmavík. Yfir daginn m...
Deildu

Á morgun, miðvikudaginn 22. janúar, verður hópur starfsfólks frá Barna- og unglingageðdeild staðsettur í Strandabyggð á vegum Foreldrafélags Grunnskólans á Hólmavík. Yfir daginn mun hópurinn starfa með unglingum sem og fagfólki sem starfar með börnum í Standabyggð og nærsveitum.

Opinn fundur fyrir alla áhugasama verður svo í Félagsheimilinu kl 18:00 sama dag. Þar mun eiga sér stað fræðsla um starfsemi BUGL auk sameiginlegrar fræðslu ætlaða foreldrum, forráðamönnun, fagfólki og unglingum þar sem fjallað verður meðal annars um kvíða/þunglyndi, sjálfskaðandi hegðun og einelti auk umfjöllunar um það sem brennur á áheyrendum.

Öll velkomin!

Til baka í yfirlit