Fara í efni

Opið fyrir tilnefningar Íþróttamaður Strandabyggðar 2024

30.12.2024
Tómstunda-, íþrótta- og menningarnefnd óskar eftir tilnefningum til Íþróttamanns Strandabyggðar 2024.Útnefningunni er ætlað að vera viðurkenning fyrir unnin íþróttaafrek eða anna?...
Deildu
Tómstunda-, íþrótta- og menningarnefnd óskar eftir tilnefningum til Íþróttamanns Strandabyggðar 2024.

Útnefningunni er ætlað að vera viðurkenning fyrir unnin íþróttaafrek eða annað framlag til íþróttastarfs á liðnu ári og hvatning til enn frekari afreka í framtíðinni.

Íþróttamaður ársins í Strandabyggð þarf að hafa náð 16 ára aldri og vera búsettur með lögheimili í Strandabyggð á árinu.

Á sama hátt og Tómstunda-, íþrótta- og menningarnefnd útnefnir íþróttamann ársins í Strandabyggð skal velja einn einstakling eldri en 12 ára sem hlýtur svokölluð Hvatningarverðlaun Strandabyggðar. Verðlaunin skulu veitt íþróttamanni sem sýnir ríkan áhuga á sinni íþróttagrein, er góður félagi og góð fyrirmynd.

Hér er hægt að skoða reglur sveitarfélagsins um val á Íþróttamanni ársins
Tilnefningar sendist á netfangið strandabyggd@strandabyggd.is til og með 19. janúar 2025.

Tómstunda-, íþrótta- og menningarnefnd
Til baka í yfirlit