Nú gefst fólki tækifæri á að kynna sér og skoða starfsmemi Sorpsamlags Strandasýslu en miklar breytingar hafa verið á undanförnum árum í sorphirðu og flokkun. Sorpsamlagið er fyrirtæki í stöðugri þróun til að mæta lögum og reglum og þörf samfélagsins. Margar spurningar hafa vaknað hjá íbúum vegna breytinga við sorphirðu og nú er tækifæri að koma í heimsókn og kynna sér starfsemina.
Opið hús hjá Sorpsamlagi Strandasýslu
12.06.2026
Sorpsamlag Strandasýslu býður íbúum og gestum í heimsókn mánudaginn 15. júní frá kl. 15:00 til 18:00.
