Meginmarkmið íþrótta- og frístundastyrkja er að stuðla að aukinni hreyfingu og félagsþátttöku barna í sveitarfélaginu. Styrkur er veittur vegna æfinga- og þátttökugjalda fyrir börn á aldrinum 5 að 18 ára með lögheimili í Strandabyggð. Styrkhæft er hvers konar reglulegt íþrótta- og frístundastarf. Fjárhæð styrks er ákveðin ár hvert í sveitarstjórn að fengnum tillögum frá tómstunda- íþrótta- og menningarnefnd. Styrkur nemur aldrei hærri fjárhæð en sem nemur greiddum gjöldum.
Styrkur árið 2026 er 40.000 kr.
Umsóknir vegna æfingagjalda frá 1. september til 31. ágúst þurfa að berast í síðasta lagi 15. september ár hvert til skrifstofu Strandabyggðar eða á strandabyggd@strandabyggd.is
Gögn sem fylgja þurfa umsókninni:
• Afrit af reikningi þar sem fram kemur fyrir hvaða íþrótt eða tómstund er verið að greiða og fyrir hvaða barn.
• Staðfestingu á greiðslu
• Reikningsupplýsingar til að leggja styrkinn inn á
Greiðsla styrks fer fram fyrir lok október ár hvert.
