Ingibjörg Alma Benjamínsdóttir, leikskólakennari, hefur verið ráðin leikskólastjóri við leikskólann Lækjarbrekku. Ingibjörg Alma hefur bæði starfað sem almennur starfsmaður og deildarstjóri við leikskólann Ásgarð á Hvammstanga frá árinu 2002 með 2 - 6 ára börnum. Áður vann hún m.a. á leikskólanum Sólgarði sem er leikskóli á vegum Félagstofnunar stúdenta og er fyrir börn á aldrinum 6 mánaða til 2 ára. Ingibjörg Alma kemur til starfa 4. apríl n.k. en hún mun koma að skipulagningu innra starfs fram að þeim tíma.
Ingibjörg Alma Benjamínsdóttir er boðin velkomin til starfa fyrir Strandabyggð.
Nýr leikskólastjóri við leikskólann Lækjarbrekku
10.01.2011
Ingibjörg Alma Benjamínsdóttir, leikskólakennari, hefur verið ráðin leikskólastjóri við leikskólann Lækjarbrekku. Ingibjörg Alma hefur bæði starfað sem almennur starfsmaður og de...