Fara í efni

Náttúrubarnahátíð á Ströndum helgina 10.-12. júlí

25.06.2026
Það verður líf og fjör á Sauðfjársetrinu í Sævangi helgina 10.-12. júlí en þá verður Náttúrubarnahátíð á Ströndum haldin í tíunda sinn. Hátíðin er því fyrir löngu orðin fastur liður á sumrin á Ströndum.
Deildu

Dagrún Ósk Jónsdóttir þjóðfræðingur hefur haldið utan um hátíðina frá upphafi. „Sævangur er náttúrulega frábær staður fyrir svona hátíð, nálægðin við fjöruna og þetta ótrúlega skemmtilega og fjölbreytta fuglalíf og plönturnar og þetta hús sem er náttúrulega gamalt félagsheimili og ennþá samkomustaður fólks á svæðinu fær þarna enn eitt hlutverk“ segir Dagrún hress. Hátíðin er fjölskylduhátíð sem fer að mestu fram utandyra og einkennist dagskráin af fjölbreyttri útivist, náttúrutúlkun, tónlist, fróðleik og fjöri fyrir náttúrubörn á öllum aldri. 

Líkt og undanfarin ár er ókeypis að taka þátt í hátíðinni og öllum viðburðum hennar. „Mér finnst ofboðslega mikilvægt að það sé frítt að taka þátt í hátíðinni, menning og náttúra á að vera aðgengileg öllum sem áhuga hafa finnst mér“ segir Dagrún og bætir við „Það er auðvitað gríðarlega vinna sem fer í skipulagningu á svona viðburði, þar sem koma í kringum 400 manns alls staðar að til að skemmta sér saman, en það er líka ofboðslega gefandi að halda hátíðina, það eru allir svo þakklátir og glaðir. Ég ætla að leyfa mér að segja að þetta er líka frábær kynning fyrir svæðið, fjölskyldur eru að koma langt að til að skapa skemmtilegar minningar hér.“ 

Veitingasala er á Sauðfjársetrinu (Kaffi Kind) alla helgina og er þar nóg úrval af allskonar réttum bæði fyrir grænkera og aðra.

Dagskrána má sjá hér fyrir neðan:  
Föstudagur 10. júlí
17:30 Fjölskyldugönguferð í fjörunni
18:30 Setning hátíðarinnar og veðurgaldur
18:30 Hægt að kaupa súpu, grillaðar pylsur (grænmetis og ekki) og ís í Sævangi
19:00 Mögnuð töfrasýning með Jóni Víðis
20:00 Æsispennandi Náttúrubarnakviss

Laugardagur 11. júlí
12:00 Náttúrujóga
13:00 Sólmyrkvastuð með Sævari Helga Bragasyni
14:00 Náttúrufjör: Kajakar, tilraunastofan, náttúrubingó, pínulítil lífveru tattú með Náttúruminjasafni Íslands, grjót, urð og hamragljúfur með Árnastofnun, Ullarævintýri með Fine Foods, skrifað með fjöðrum, grillaðar pylsur og fleira
15:30 Spennandi fjörudýrasmiðja með Náttúruminjasafni Íslands
17:00 Stórskemmtileg leikjasmiðja með töframanninum Jóni Víðis
18:00 Fuglafjör: Trítlað um teistuvarpið
18:00 Hægt að kaupa grillaðar pylsur og súpu
20:30 Fjölskyldutónleikar með Gunna og Felix
21:30 Drauga- og tröllasögur í Sagnahúsinu

Sunnudagur 12. júlí
11:00 Núvitundarævintýri
12:00 Stórskemmtilegt skemmtiatriði
12:30 Hægt að kaupa grillaðar pylsur, súpu og ís
13:00 Skapandi náttúrusmiðja
15:00 Fjölskylduplokk

Í gegnum árin hefur gríðarlegur fjöldi listafólks komið fram á hátíðinni, bæði af svæðinu og sem kemur lengra að: „Mikið af listafólkinu eru reyndar líka orðnir hálfgerðir fastagestir og það eru dæmi um að þau hringi til að athuga hvenær hátíðin er svo þau bóki ekki eitthvað annað á sama tíma, þeim finnst svo gaman að koma og hugmyndin svo skemmtileg.“ Segir Dagrún hress. 

Hátíðin er styrkt af Uppbyggingasjóði Vestfjarða og Orkubúi Vestfjarða. Í ár er hún einnig haldin í góðu samstarfi við Náttúruminjasafn Íslands, Árnastofnun, Fine Foods og ábúendur á Kirkjubóli en Dagrún segir það skipta öllu máli fyrir hátíð af þessu tagi og þakkar kærlega fyrir stuðninginn.

En er þá allt að verða tilbúið? „Það er svona mest tilbúið, en það er alltaf smá hasar rétt fyrir líka að klára hitt og þetta, svara póstum og markaðssetja, en ég er bara ótrúlega spennt og hlakka til að sjá ykkur“ segir Dagrún að lokum.

Nánari upplýsingar má finna á Facebook viðburðinum, einnig er hægt að hafa samband við Dagrúnu Ósk á natturubarnaskoli@gmail.com eða í síma 661-2213.

Til baka í yfirlit