Fara í efni

Nánari úrslit sveitarstjórnarkosninga 2026-2030 í Strandabyggð

19.05.2026
Samkvæmt upplýsingum frá kjörstjórn Strandabyggðar var lítið um yfirstrikanir í kosningum til sveitarstjórnar laugardaginn 16. maí og höfðu ekki áhrif til breytinga.
Deildu

Eitthvað var um að frambjóðendur væru færðir til um sæti en það hafði ekki áhrif á sæti þeirra.

Niðurstaða um útstrikanir 

G-listi Vegvísis

Hrafnhildur Þorsteinsdóttir - 0
Jón Örn Haraldsson - 0
Kjartan Jónsson - 1
Laufey Heiða Reynisdóttir - 4
Andri Freyr Arnarsson - 0
Anna Karen Amin Kolbeins - 0

B-listi Framsóknarflokks og óháðra

Sigurbjörn Rafn Úlfarsson - 1
Kristín Anna Oddsdóttir - 4

T-listi Strandabandalagsins

Þorgeir Pálsson - 0
Grettir Örn Ásmundsson - 2

Kjörsókn var mjög góð eða 85,8% en 351 voru á kjörskrá, 301 manns greiddu atkvæði, gildir atkvæðaseðlar voru 284 en auðir seðlar 15 og ógildir 2.

Þessir aðilar skipa því sveitarstjórn Strandabyggðar 2026-2030 og taka við stjórnartaumnum þann 1. júní 2026 og óskum við þeim til hamingju með kjörið.

1. Hrafnhildur Þorsteinsdóttir G-listi Vegvísis
2. Jón Örn Haraldsson G-listi Vegvísis
3. Kjartan Jónsson G-listi Vegvísis
4. Sigurbjörn Rafn Úlfarsson B-listi Framsóknarflokks og óháðra
5. Þorgeir Pálsson T-listi Strandabandalagsins

Varamenn: 

6. Laufey Heiða Reynisdóttir G-listi Vegvísis
7. Andri Freyr Arnarsson G-listi Vegvísis
8. Anna Karen Amin Kolbeins G-listi Vegvísis
9. Kristín Anna Oddsdóttir B-listi Framsóknarflokks og óháðra
10. Grettir Örn Ásmundsson T-listi Strandabandalagsins
 

Til baka í yfirlit